Sælkerasamlokur
Þykkbotna panna hituð, svolítil ólífuolía sett á hana og brauðsneiðarnar steiktar við góðan hita þar til þær hafa tekið dálítinn lit á báðum hliðum.
Meiri olíu bætt við eftir þörfum en brauðið á ekki að vera löðrandi í olíu (einnig má rista brauðið í brauðrist). Sneiðarnar eru svo smurðar með svolitlu tómatmauki eða pestói. 4 sneiðar settar á diska, klettasalati dreift á þær, tómatarnir skornir í þykkar sneiðar og raðað ofan á og síðan eru kjúklingabringurnar skornar í sneiðar þvert yfir og raðað ofan á tómatana.
Ostarúllan skorin í sneiðar og raðað þar ofan á og brauðsneiðarnar sem eftir eru lagðar yfir allt saman.