Tómatsalat með osti
Salatið tekið sundur, skolað, þerrað og blöðunum raðað á fat eða stóran disk.
Tómatarnir skornir í sneiðar og ostarúllan einnig. Raðað ofan á salatblöðin og svolitlu timjani e.t.v. dreift yfir. Basilíkan, furuhneturnar og parmesanosturinn sett í matvinnsluvél eða blandara og maukað. Sítrónusafa, pipar og salti hrært saman við og síðan er ólífuolíunni þeytt saman við smátt og smátt.
Hluta af sósunni er svo dreypt yfir salatið og afgangurinn borinn fram með í lítilli skál.